Landsnet hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna orða umhverfisráðuneytisins sem leggur út af umsögn Landsnets til Skipulagsstofnunar um afstöðu fyrirtækisins til sameiginlegs mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og orkuvera á Reykjanesi. Segir umhverfisráðuneytið Landsnet hafa “týnt” 180 MW. Landsnet áréttar hins vegar í yfirlýsingu sinni að Suðvesturlínur muni geta annað aflþörf stækkaðs álvers í Helguvík, ef til kemur. Sem og öðrum framtíðaráformum um uppbyggingu iðnaðar og orkuöflun á svæðinu, sbr. umsögn fyrirtækisins til Skipulagsstofnunar dags. 14. október 2009. Síðan segir í yfirlýsingunni:

„Fram kom í umsögn Landsnets að Norðurál hefði hafið framkvæmdir við allt að 360.000 tonna álver í Helguvík og sé aflþörf þess allt að 435MW en hið rétta er að Norðurál hefur hafið framkvæmdir við allt að 250.000 tonna álver í Helguvík með allt að 435 MW aflþörf. Norðurál stefnir hins vegar að stækkun álversins í 360.000 tonn og nemur heildaraflþörf álvers að þeirri stærð 625 MW.

Landsnet sendi bæði Skipulagsstofnun og umhverfisráðuneyti upplýsingar í dag þar sem þetta misræmi í umsögn fyrirtækisins var leiðrétt.

Um leið og beðist er velvirðingar á fyrrnefndri missögn skal jafnframt ítrekað að hún hefur ekki áhrif á mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína né niðurstöðu umsagnar fyrirtækisins til Skipulagsstofnunar,” segir í yfirlýsingu Landsnets.