Leki á landspítala. Mynd af Facebook síðu Jóns Gunnarssonar.
Leki á landspítala. Mynd af Facebook síðu Jóns Gunnarssonar.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Vatn hefur lekið inn á ganga Landspítalans í kjölfar óveðurs í nótt. Starfsmenn spítalans hafa brugðið á það ráð að setja fötur undir lekann.

Alþingismaðurinn Jón Gunnarsson vakti athygli á lekanum á fésbókarsíðu síðu sinni í morgun og birti mynd af ganginum. Hann segir ástandið algjörlega óviðunandi.

Lekinn kemur frá þaki hússins. Þakið er steypt og dúkurinn upprunalegur frá byggingu rýmisins, að því er fram kemur á vef mbl.is. Reynt hafi verið að þétta þakið á síðustu árum án árangurs.

Ingólf­ur Þóris­son, yf­ir­maður eigna á Land­spít­al­an­um, seg­ir í samtali við mbl.is að ítrekað hafi rigningarvatn lekið í gegn á gang spítalans. Hann segir að það kosti um 40 milljónir að skipta um dúk og því hafi ekki verið til fjármagn í að ráðast í það verkefni.