Landspítalinn var rekinn með 52 milljóna tekjuafgangi á árinu 2010, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri spítalans. Heildarvelta nam 40,1 milljarði króna og þar af nam framlag ríkissjóðs 33,1 milljarði.

Í tilkynningu segir að ekki hafi verið um að ræða viðbótarframlag til spítalans í fjáraukalögum fyrir árið 2010.

Stærsti einstaki útgjaldaliður ársins 2010 var launagjöld, alls 25,5 milljarðar króna. Hann lækkaði um 1,2 milljarða frá árinu 2009. Starfsmönnum fækkaði um 200 á síðasta ári og hefur fækkað um samtals 670 frá ársbyrjun 2009.

Kemur fram að lyfjakostnaður lækkaði um 12% eða 170 milljónir, rannsóknum fækkaði um 17%, fæðingum fækkaði um 2% og voru 3.5420, alls leituðu 91.482 sjúklingar til bráðamóttöku og meðallegutími sjúklings styttist úr 6,9 dögum í 6,7 daga.

„Á árinu 2010 var LSH gert að lækka kostnað sinn um 3.400 milljónir króna. Það tókst með mikilli vinnu, eljusemi og fagmennsku starfsmanna. Þjónusta spítalans hefur breyst nokkuð á þessu ári en við höfum á sama tíma náð að standa vörð um öryggi sjúklinga. Þessi mikli árangur hefði aldrei náðst nema með framúrskarandi dugnaði og samheldni starfsfólks,“ segir Björn Zoëga forstjóri Landspítalans í tilkynningu.