Landsteinar Strengur komust á dögunum í Microsoft Dynamics Inner Circle Club 2008. Þangað komast þeir samstarfsaðilar Microsoft sem uppfylla ýmis skilyrði, t.d. um aukna og mikla sölu, góða þjónustu, hátt menntunarstig starfsmanna og fleira.

Viðurkenningin veitir fyrirtækinu mesta mögulega aðgang að sérfræðingum Microsoft sem er í boði.