Landstólpar þróunarfélag ehf. hefur nú boðið Stjórnarráði Íslands að leigja allt skrifstofuhúsnæði á reit 2 á lóðinni Austurbakka 2 í Reykjavík. Hugmyndir þar að lútandi voru fyrst kynntar árið 2014.

Áætluð stærð rýmisins er um 6.400 fermetrar, en Landstólpi hefur þá einnig boðist til að taka hönnun bygginga á reitnum til endurskoðunar í samráði við forsætisráðuneytið tl þess að byggingarnar falli að þörfum ráðuneyta Stjórnarráðsins.

Stefnt er að því að niðurstaða í málinu liggi fyrir eigi síðar en 12. febrúar næstkomandi.