Í ljós hefur komið að árið 2005 fjárfesti fjárfestingasjóðurinn Fyrirtækjabréf Landsbankans í skuldabréfi á einstakling.

Andvirði þess nam 400 milljónum króna sem þá var hverfandi hluti af heildarverðmæti bréfa í sjóðnum. Greitt var af skuldabréfinu samkvæmt samningi framan af, og síðar var hluta af eftirstöðvunum skuldajafnað. Í dag nema eftirstöðvar bréfsins hins vegar um 190 milljónum króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar í dag en þar kemur fram að skömmu eftir bankahrunið hafi nýir eigendur tekið við rekstri Landsvaka auk þess sem skipt var um stjórn félagsins. Það sé mat nýrra stjórnenda að kaup á fyrrgreindu skuldabréfi feli í sér brot á fjárfestingarstefnu sjóðsins.

„Þegar ljóst varð að skuldari bréfsins myndi ekki standa skil á eftirstöðvum eftir lokun sjóðsins, var það niðurstaða Landsvaka, m.a. byggð á óháðri lögfræðiúttekt, að Landsvaki yrði að bera tjónið sem af brotinu leiðir,“ segir í tilkynningunni.

„Landsvaki mun því bæta hlutdeildarskírteinishöfum sjóðsins fyrrgreint tjón og harmar  jafnframt atvikið og þau óþægindi sem það hefur valdið. Bankaráð NBI hf. Landsbankans, mun tryggja  áframhaldandi rekstrarhæfi Landsvaka þannig að félagið mæti þeim eiginfjárkröfum sem gilda um reksturinn.“

Sjóðurinn hefur verið í slitameðferð frá því honum var lokað þann 6. október 2008. Hlutdeildarskírteinishöfum hefur verið greitt út úr sjóðnum eftir því sem eignum hefur verið komið í verð. Sjóðurinn hafði verið starfræktur með nokkrum breytingum frá árinu 1990 undir merkjum Landsbréfa og síðar Landsvaka hf, dótturfélags Landsbanka Íslands hf. og nú dótturfélags NBI hf. Landsbankans.

Samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins bar honum að fjárfesta í skuldbréfum og víxlum fyrirtækja, fjármálastofnana, ríkis og sveitarfélaga.

Fjármálaeftirlitinu hefur verið gerð grein fyrir málinu og Rannsóknarnefnd Alþingis fengið afhent gögn er það varða.