Landsvirkjun hefur skrifað undir styrktarsamning til tveggja ára við félagið Konur í orkumálum. Félagið var stofnað fyrr á árinu og telur það nú um 200 félagsmenn.

Það er opið öllum þeim sem annað hvort starfa við orkumál eða hafa áhuga á orkumálum á Íslandi, en tilgangur þess er að efla þátt kvenna í orkumálum og styrkja tengsl þeirra á milli. Einnig á það að stuðla að menntun og fræðslu kvenna er varðar orkumál.

Jákvæð áhrif innan orkugeirans

„Það er full þörf á því að auka hlut kvenna innan orkugeirans og því er stofnun félagsins Konur í orkumálum fagnaðarefni,“ segir Hörður Arnarsson, forstjori Landsvirkjunar í fréttatilkynningu.

„Það er Landsvirkjun sérstaklega ánægjulegt að styrkja þennan góða félagsskap, sem hefur alla burði til þess að hafa jákvæð áhrif innan orkugeirans á komandi misserum og árum.“

Formaður félagsins, Harpa Pétursdóttir, lögfræðingur hjá BBA, þakkar Landsvirkjun stuðninginn og segist ánægð með að stjórnendur orkufyrirtækja á Íslandi virðist sammála félaginu um að ástæða sé til að auka hlut kvenna í geiranum.