Landsvirkjun hefur undirritað lánasamning sem nemur 34 milljónum Bandaríkjadala, um 4,4 milljarðar króna, á föstum vöxtum.

Citibank Japan Ttd. mun einnig vera í forstöðu fyrir fjölbankalán sem nemur 34 milljónum Bandaríkjadala til viðbótar. Aðrir bankar í fjölbankaláninu eru Bank of Yokohama og Commerzbank AG, Tokyo Branch en lánið verður á fljótandi vöxtum með ábyrgð frá Nippon Export and Investment Insurance (NEXI), Heildar lánsfjárhæð nemur því allt að 68 miljón Bandaríkjadala, eða tæpum 8,8 milljörðum króna.

Lánin eru svkölluð verktaka fjárögnum vegna verksamnings um tvær 45MW vélasamstæður frá  Fuji Electric fyrir Þeistareykjavirkjun sem á að hefja vinnslu árið 2017. Lánin eru veitt til 20 ára og eru án ríkisábyrgðar en Takanawa Japan KK og Citigroup voru ráðgjafar Landsvirkjunar við fjármögnunina.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:

„Þetta er tímamótasamningur fyrir Ísland og Japan þar sem þetta er í fyrsta sinn sem Ísland fær fjármögnun með þessum hætti frá Japan. Við erum virkilega ánægð með þann stuðning sem japanskar lánastofnanir veita til fjármögnunar Þeistareykjavirkjunar.“