Landsvirkjun skuldbreytir tveimur lánum hjá Norræna fjárfestingarbankanum úr evrum, á breytilegum vöxtum, í bandaríkjadali á föstum vöxtum.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að ávinningur sé tvíþættur. Annars vegar sé dregið úr fjárhagslegri áhættu vegna mögulegra breytinga á gengi evru gagnvart starfsrækslugjaldmynt félagsins, bandaríkjadal. Hins vegar sé hlutfall breytilegra vaxta í lánasafninu lækkað og dregið úr vaxtaáhættu félagsins.

Við breytinguna lækkar hlutfall evru í vaxtaberandi langtímaskuldum Landsvirkjunar úr 38% í 31% en á sama tíma hækkar hlutfall bandaríkjadals úr 42% í 49%.