Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra undir rammasamningi fyrirtækisins (European Midt Term Notes), sem svarar til um 14,4 milljarða króna, segir í fréttatilkynningu.

Lánstíminn er 20 ár og eru kjör skuldabréfsins níu punktar yfir Euribor, sem eru millibankavextir í Evrópu, segir í tilkynningunni. Umsjónaaðili útgáfunnar er franski bankinn CDC IXIS og er fjárfestirinn evrópskur.

Samhliða þessum viðskiptum er verið að ljúka útgáfu á skuldabréfi að fjárhæð 50 milljónir evra, sem svarar til um 4,8 milljarða króna, til 10 ára, kjörin eru samkvæmt útgefnum viðmiðum og er umsjónaraðilinn skandinavískur, segir Landsvirkjun. Skuldabréfið er einnig gefið út undir EMTN rammasamning Landsvirkjunar.

?Með útgáfunum er fjármögnun ársins nærri lokið en einungis er eftir að fjármagna sem svarar til um 1,6 milljarða króna en heildarfjárþörf fyrirtækisins á árinu er um 45 milljarðar króna," segir í tilkynningu Landsvirkjunar.

?Fjármögnun ársins hefur gengið vel og hafa kjör fyrirtækisins verið í samræmi við markmið og fjármögnunin farið að mestu farið fram á Evrópumarkaði. Fyrir utan fjármögnun ársins hefur Landvirkjun aðgang að veltiláni að upphæð 400 milljón dollara sem tekið var í árslok 2005 og er ætlað að styðja enn frekar við lausafjárstöðu fyrirtækisins."