Raunvirði meðalverðs Landsvirkjunar til sölufyrirtækja rafmagns mun hækka um 2,2% að raunvirði á næsta ári að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Sendi Landsvirkjun út fréttatilkynningu um málið vegna fréttar Morgunblaðsins af hækkunum á heilsöluverði til sölufyrirtækja rafmagns og vill fyrirtækið árétta eftirfarandi:

Eins og kom fram í frétt Landsvirkjunar frá 8. september (sjá frétt á vef LV) má búast við því að meðalverð Landsvirkjunar til sölufyrirtækja rafmagns muni hækka að raunvirði um 2,2% á næsta ári. Þrátt fyrir þessa hækkun er áætlað að meðalverð til viðskiptavina verði lægra en það var á árunum 2015 og 2016 á föstu verðlagi.

Fyrirkomulagi heildsölusamninga var breytt um síðustu áramót, í því augnamiði að bæta nýtingu auðlindarinnar. Þetta var m.a. gert með því að minnka aflskuldbindingu sölufyrirtækja og auka sölu á skammtímarafmagni.

Til að endurspegla betur kostnað við framleiðslu á mismunandi árstímum og vegna bættrar nýtingar raforkukerfisins, þar sem hægt er að miðla betur vatni í lónum milli árstíða, hækkar verð á rafmagni yfir sumarmánuði en á móti er ákveðið að lækka verð á haustin þannig að meðalverðhækkun verður hófleg. Hækkunin verður þannig minni en ella þar sem minna er keypt af rafmagni yfir sumartímann en að vetri til.