Landsvirkjun hefur náð samkomulagi við Orkuveitu Húsavíkur um kaup á 28,771% hlut Orkuveitu Húsavíkur í hlutafélaginu Þeistareykir ehf. Kaupverð er tæpar 14 milljónir bandaríkjadollara.
Eftir kaupin á Landsvirkjun tæplega 93% hlut í félaginu. Orkuveita Húsavíkur mun a´fram eiga 3,2% í félaginu og Þingeyjarsveit 4,09%.
Landsvirkjun mun greiða fyrir hlutinn í áföngum þar til orkuvinnsla hefst á umráðarsvæði Þeistareykja ehf.
Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu Landsvirkjunar, Orkuveitu Húsavíkur og Norðurþings.
Í tilkynningunni segir:
„Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í rannsóknum og öðrum verkefnum því tengdu.
Boraðar hafa verið sex djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.
Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Orkuveita Húsavíkur ehf. hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu og mun sem minni hluthafi halda þeirri uppbyggingu áfram.
Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins.
Samhliða kaupunum hafa Norðurþing og Landsvirkjun gert með sér samstafssamning um nýtingu raforku á umráðasvæði Þeistareykja ehf. Eru aðilar sammála um að stuðlað verði að því sem kostur er að áhugasamir orkukaupendur hefji orkufreka starfsemi í Þingeyjarsýslum og orkukaup frá Þeistareykjum ehf. og Landsvirkjun eftir atvikum.“