Lausafé Landsvirkjunar í árslok 2009 nam alls um 415 milljónum Bandaríkjadala (það samsvarar um 50 milljörðum króna).  Þar af voru í sjóði um 135 milljónir USD og 280 milljónir í óádregnu erlendu veltiláni.  Lausafé ásamt veltiláni og sjóðstreymi tryggir að fyrirtækið getur staðið við allar núverandi skuldbindingar til 2012.  Landsvirkjun stefnir að því að birta ársreikninga vegna ársins 2009 upp úr miðjum mars nk. segir í tilkynningu félagsins

Lánshæfismat óbreytt

Þar er áréttað að lánshæfismat Landsvirkjunar hefur ekki breyst. Í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands að vísa Icesave lögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu breyttu tvö matsfyrirtæki lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.  Matsfyrirtækið Fitch Ratings lækkaði langtímaeinkunn ríkissjóðs í erlendum gjaldmiðli í BB+ (neikvæðar horfur) úr BBB- og er einkunnin því í ruslflokki. Á sama tíma setti matsfyrirtækið Standard and Poor´s lánshæfiseinkunn ríkissjóðs á athugunarlista með neikvæðum horfum segir í tilkynningu Landsvirkjunar.

Þrátt fyrir þessar breytingar hefur ekki orðið breyting á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar.  Fyrirtækið hefur enn lánshæfiseinkunnina Baa3 (neikvæðar horfur) hjá Moody´s sem er í fjárfestingarflokki.  Í lánssamningum Landsvirkjunar eru engin ákvæði sem kalla á gjaldfellingu eða breytingar á vöxtum þó að lánshæfiseinkunn lækki frekar.  Breytingin á lánshæfi ríkissjóðs hefur því engin áhrif á vaxtakjör á eldri lánum fyrirtækisins.  Hún gæti hins vegar haft, að öllu öðru óbreyttu, neikvæð áhrif á aðgengi Landsvirkjunar að nýju lánsfjármagni á ásættanlegum kjörum.