Á stjórnarfundi sameignafyrirtækis Reykjavíkurborgar, Akureyrabæjar og ríkisins um Landsvirkjun var kynnt samkomulag um raforkusölu til stækkunar álversins í Straumsvík.

Álfheiður Ingadóttir, fulltrúi Vinstri grænna í stjórn Landsvirkjunnar, sendi frá sér tilkynningu um fundin og þar segir meðal annars:

"Á síðasta stjórnarfundi sameignarfyrirtækis Reykjavíkurborgar, Akureyrarbæjar og ríkisins um Landsvirkjun, sem haldinn var í dag, 15. desember 2006 var lagt fram til kynningar og sem trúnaðarmál samkomulag um raforkusölu til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík.

Áður en til þess kom var tillaga mín um að létta leynd af verðákvæðum samkomulagsins felld með atkvæðum allra stjórnarmanna. Þar sem ég tel að þjóðin sem er eigandi bæði Landsvirkjunar og þeirra náttúruverðmæta sem verið er að selja til stóriðju, eigi rétt á að fá upplýsingar um andvirði þeirra get ég ekki tekið við slíkum upplýsingum undir því fororði að eiga að leyna þeim fyrir Reykvíkingum eða öðrum landsmönnum."