Landsvirkjun og Ístak undirrituðu í dag samning um byggingu Búðarhálsavirkjunar.Í tilkynningu segir að verkið skiptist í þrjá verkhluta sem eru gerð Sporðöldustífu, að sprengja og styrkja aðrennslisgöng virkjunarinnar og bygging stöðvarhúss og inntaksmannvirkja ásamt greftri frárennslisskurðar.

Verkið var boðið út á evrópska efnahagssvæðinu og buðu sjö aðilar í verkið. Ístak var með lægsta boð í allt verkið að teknu tilliti til afslátta.

Heildarfjárhæð samningsins nemur rúmum 9,8 milljörðum króna að meðtöldum virðisaukaskatti eða 77,56% af kostnaðaráætlun.

Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í vetur og er áætlað að virkjunin verði komin í rekstur fyrir árslok 2013. Áætlað er að heildarfjöldi ársverka sem skapist á Íslandi vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar verði á milli 600 til 700 yfir allan framkvæmda­tímann. Þegar flest verður á vinnustað verða þar um 300 manns.

·

·