Nýi rafmagnssamningurinn er efnislega svipaður og fyrri rafmagnssamningur félaganna frá árinu 2014 en með nokkrum frávikum þó. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í desember síðastliðnum að hefja skoðun á fyrri rafmagnssamningi aðila frá 2014. Þeim rafmagnssamningi hafa samningsaðilar sameiginlega rift enda ýmis skilyrði samningsins óuppfyllt. Nýi rafmagnssamningurinn var tilkynntur til ESA í dag.

„Við erum nú sem fyrr mjög ánægð með samstarf okkar við PCC BakkiSilicon hf. og einnig með samstarfið sem við höfum átt með ESA við gerð nýja samningsins. Við erum viss um að kísilmálmiðnaður muni dafna á Íslandi til langs tíma þar sem raforka er unnin úr endurnýjanlegum orkugjöfum,“ sagði Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar.

Gert er ráð fyrir að verksmiðjan hefji starfsemi á árinu 2017 og framleiði í fyrsta áfanga allt að 36 þúsund tonn af kísilmálmi og noti 58 MW af afli.