Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að leggja undirbúning Norðlingaölduveitu til hliðar, segir í fréttatilkynningu.
Ástæður samþykktarinnar voru ekki gefnar upp.
?Landsvirkjun mun einbeita sér að öðrum virkjunarkostum á Þjórsár-/Tungnaársvæðinu til að svara þeirri orkuþörf sem fyrirsjáanleg er á SV-landi á næstunni," segir í tilkynningunni.