Þór Hauksson hefur á síðustu árum komið að endurskipulagningu rekstrar hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins. Hann var fjárfestingastjóri Framtakssjóðs Íslands frá árinu 2010 en hefur nú tekið við starfi framkvæmdastjóra Burðaráss, nýs framtakssjóðs sem rekinn er af Straumi fjárfestingabanka.

Maki Þórs er Lilja Aðalsteinsdóttir, lögfræðingur hjá Arion banka. Börn þeirra eru Borgþór Örn 10 ára og tvíburasysturnar Jóhanna Melkorka og Hulda Kristín, sjö ára.

Nánar er fjallað um starfs- og námsferil Þórs Haukssonar í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast blaðíð hér að ofan undir liðnum Tölublöð.