Í nóvember voru farnar 170 ferðir frá Keflavíkurflugvelli til flugvalla í grennd við Lundúnir samkvæmt talningu Túrista . Í mánuðinum var langoftast flogið til Lundúna og var fimmta hver ferð frá Keflavíkur til þessarar höfuðborgar Bretlands.

Til samanburðar voru ferðirnar til Kaupmannahafnar og Óslóar samtals 162 talsins, en borgirnar tvær koma næst á eftir Lundúnum á lista yfir þá staði sem oftast var flogið til frá Keflavík. New York situr í fjórða sæti með 5,6% ferða og París í því fimmta með 5,2% ferða.