Isavia bendir farþegum sem eru á leið til útlanda og hyggjast leggja bíl sínum í langtímabílastæði að stæðin eru orðin yfirfull. Því miður verður ekki hægt að leggja fleiri bílum í stæðin og verðum við því að ráðleggja farþegum að taka rútu eða Strætó eða láta aka sér á flugvöllinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia.

Undanfarna daga hafa starfsmenn Isavia unnið að því að ferja bílum á önnur og hefur meðal annars verið tekinn undir það hluti af rútustæðum við flugvöllinn. Nú hafa yfir 600 bílar verið fluttir og er því ekki meira pláss á þeim svæðum sem gert var ráð fyrir að notast við ef þessi staða kæmi upp.

Í fyrra voru rétt ríflega 2.000 bílar í langtímastæðum yfir páskana en nú eru þeir 3.000 talsins og aukningin er gríðarleg. Bílastæðin vour stækkuð í fyrrasumar og 350 sætum bætt við. Bílastæðin eru því nú 2.350 talsins og alla jafna er um 43% nýting á þeim. Íslendingar eru greinilega á farandsfæti yfir páskana og því hefur þessi staða komið upp.

Ljóst er að hefja þarf vinnu við að stækka bílastæðin enn frekar svo þau ráði við mesta álagstíma ársins, sem eru páskarnir. Isavia vill biðjast afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.