Standard & Poor's hefur sett lánshæfismat Íbúðalánasjóðs á athgunarlista með neikvæðum horfum, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallar frá Íbúðalánasjóði. Það er í samræmi við íslenska ríkið, sem var sett á athugunarlista í gær.

Þá kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka í dag að Landsvirkjun var einnig sett á athugunarlista matsfyrirtækisins með neikvæðum horfum.

Samkvæmt matsfyrirtækinu er búist við að lánshæfiseinkunnin íslenska ríkisins verði á athugunarlista næstu vikur og að tekin verði afstaða innan þess tíma. Núverandi lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs hjá S&P eru BBB- fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og BBB fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt. Skammtímaeinkunnir ríkissjóðs eru A-3 í hvort tveggja erlendri og innlendri mynt. Allar lánshæfiseinkunnir eru með neikvæðum horfum.