Fitch Ratings hefur lækkað lánshæfismat bankanna Glitnis og Landsbanka. Lánshæfimat Glitnis vegna langtímaskuldbindinga lækkar úr BBB- í B. Í framhaldi er einkunn vegna skammtímaskuldbindinga lækkuð úr F3 í B.

Lánshæfiseinkunn Landsbankans til langtímaskuldbindinga lækkar einnig úr BBB- í B, og skammtímaskuldbindingar úr F3 í B. Lánshæfi dótturfélags Landsbankans, Heritable Bank, lækkar úr BB í BBB.