Lánshæfismatsfyrirtækið Moodys Investor Service hækkaði í dag lánshæfismat Landsbanka Íslands hf. vegna innlána og langtímaskulda í A2 með úr A3. Horfur varðandi þetta mat eru stöðugar. Um leið staðfesti Moodys C einkunn bankans vegna fjárhagslegs styrkleika - með breytingu úr jákvæðum horfum í stöðugar - og Prime 1 einkunn vegna skammtíma lána og innlána.