Í dag lækkaði matsfyrirtækið Standard & Poor's lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt í BBB- úr BBB vegna vaxandi skuldabyrði hins opinbera.

Mat Standard & Poor's á skipti- og breytanleika (e. transfer and convertibility assessment) landsins var einnig lækkað í BBB- úr A- vegna þeirra takmarkana sem settar voru á fjármagnsviðskipti og að einhverju leyti á vöruviðskipti í október.

Á sama tíma staðfesti Standard & Poor's lánshæfiseinkunn ríkissjóðs BBB+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt og einkunnirnar A-3/A-2 fyrir skammtímaskuldbindingar