Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs á erlendum langtímaskuldbindingum í A úr A+ og á langtímaskuldbindingum í íslenskum krónum í AA- frá AA.

Einkunnir fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt A-1 og íslenskum krónum A-1+ voru staðfestar. T&C matið hefur einnig verið lækkað í AA úr AA+.

Horfurnar fyrir langtímaskuldbindingar ríkissjóðs eru neikvæðar.

Þetta kemur fram á vef Seðlabanka Íslands.