Matsfyrirtækið Standard & Poor’s hefur staðfest lánshæfismat danska ríkisins.

Lánshæfiseinkunn til lengri tíma er AAA og A-1+ til styttri tíma.

S&P segir horfurnar fyrir danska hagkerfið vera stöðugar og réttlætir lánshæfiseinkunina meðal annars með því að benda á að danskir stefnusmiðir viðhaldi aga þegar kemur að ríkisfjármálum og hversu fjölþættar stoðir hagkerfisins eru.