Orðréttar fréttir ljósvakamiðlanna eru aðgengilegar á vefsetri Lánstrausts hf, www.LT.is. Miðlun upplýsinganna hófst fyrir helgi og byggir á samstarfi við Fjölmiðlavaktina ehf, systurfyrirtæki Lánstrausts. "Fyrir viðskiptavini fyrirtækisins er þetta góð viðbót við aðrar upplýsingar sem notaðar eru við mat á væntum eða núverandi viðskiptavinum sem og við mat á birgjum og samstarfsaðilum," segir í fréttinni.

Góð þekking á þeim sem átt er í viðskiptum við stuðlar að betri árangri í viðskiptum. Það er því afar mikils virði fyrir stjórnendur íslenskra fyrirtækja að eiga kost á aðgangi að yfirliti allrar fréttaumfjöllunar ljósvakamiðlanna um tiltekið fyrirtæki segir í frétt Lánstrausts.