Heildarútlán Íbúðarlánasjóðs í júní 2016 námu 804 milljónum króna. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins. Almenn lán voru að upphæð 267 milljónir, en meðalfjárhæð þeirra var 10,3 milljónir króna.

Í skýrslunni kemur einnig fram að vanskil einstaklinga hafi dregist saman. Í lok júní námu vanskil útlána til einstaklinga 2,1 milljarði króna og var undirliggjandi lánavirði þá 20,5 milljarðar. Til samanburðar var undirliggjandi lánavirði vanskila útlána til einstaklinga 22,4 milljarðar í maí.

Afrakstur vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila virðist því vera að skila sér. Vanskil vegna útlána til lögaðila í lok júní voru að upphæð 555 milljónir króna. Frá upphafi árs hafa vanskil lækkað um 2,5 milljarða. Vanskilin ná samtals til 4,8% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í ársbyrjun var 6,93%.

Skýrsluna má lesa hér: Mánaðarskýrsla ÍLS