Þýska fyrirtækið Lanxess AG tekur yfir lyfjafyrirtækið Chemtura fyrir 2,7 milljarða dollara. Frá þessu er greint á vefsíðu Reuters . Þetta er stærsta yfirtaka þýska fyrirtækisins.

Tilboð fyrirtækisins tryggði Lanxess 19% hlut í Chemtura. Boðið hljóðaði upp á 33,5 dollara á hlut.

Þýska fyrirtækið vill með kaupunum auka fjölbreytni framleiðslu fyrirtækisins og færa sig fjær plastiðnaðinum, sem að á undir högg að sækja.