Lára N. Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs 365.  Hún tekur við starfinu af Viðari Þorkelssyni sem hverfur til starfa hjá FL Group.

Lára hefur starfað hjá fyrirtækinu í tæp 7 ár. Hún hóf störf sem rekstrarstjóri sjónvarps hjá Íslenska útvarpsfélaginu í mars 2001, varð síðan aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs 2004 og hefur verið framkvæmdastjóri sjónvarps og útvarps frá haustinu 2006.  Lára er hagfræðingur frá Háskóla Íslands.