Lára Björg Björnsdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. Lára Björg er með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún starfað við almannatengsl og ráðgjöf, fyrst hjá KOM almannatengslum og síðar hjá eigin ráðgjafarfyrirtæki, Suðvestur.

Þá starfaði hún í utanríkisráðuneytinu og hjá fastanefnd Íslands hjá NATO á árunum 2002-2006. Hún var sérfræðingur í Landsbanka Íslands á árunum 2007-2009 og starfaði sem blaðamaður á Nýju lífi, Fréttablaðinu og Viðskiptablaðinu.

Lára Björg er gift Tryggva Tryggvasyni, viðskiptafræðingi, og eiga þau fjögur börn. Lára Björg verður með aðsetur í forsætisráðuneytinu og hefur þegar störf. Hún var í 15. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmi Norður fyrir síðustu kosningar, en þar leiddi Katrín Jakobsdóttir núverandi forsætisráðherra listann.