Lárus Blöndal hæstarétttarlögmaður kemur nýr inn í stjórn Eimskips á aðalfundi félagsins sem fer fram á fimmtudaginn. Hann tekur sæti Gunnars Karls Guðmundssonar. Fimm gefa kost á sér í fimm sæti sem þýðir að það verður sjálfkjörið.

Fyrir eru í stjórninni Helga Melkorka Óttarsdóttir hæstaréttarlögmaður, Hrund Rudólfsdóttir, Víglundur Þorsteinsson og Richard Winston Mark d’Abo. Sá síðastnefndi er stjórnarformaður félagsins.

Þau Jóhanna á Bergi og Marc Jason Smernoff, sem bæði sitja sem varamenn í stjórn, gefa kost á sér í það áfram og verða sjálfkjörin.