Lárus Welding, nýráðinn forstjóri Glitnis, hefur keypt í bankanum fyrir 3,99 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða 150 milljónir hluta á genginu 26,6 en við hádegi er markaðsgengið 27,05 krónur á hlut.

Umræddur kaupréttarsamningur er til fimm ára og ávinnast 20% hans á hverju ári á því tímabili. Kaupréttarverðið leiðréttist fyrir arðgreiðslum.