Eins og undanfarin ár heitir Glitnir á starfsmenn sína og viðskiptavini sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis og greiðir nú 1.000 krónur fyrir hvern kílómetra sem starfsmaður hleypur og 300 krónur á hvern kílómetra sem viðskiptavinur hleypur.

Lárus Welding forstjóri Glitnis hefur jafnframt skorað á stjórnendur annarra fyrirtækja að taka þátt í leiknum og hvetja starfsmenn sína til dáða með því að heita á þá í hlaupinu og styrkja um leið gott málefni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum Reykjavíkurmaraþons Glitnis.

Eins og í fyrra geta þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ár valið að hlaupa í þágu tiltekinna góðgerðafélaga. Nærri lætur að á síðasta ári hafi 9 af hverjum 10 íslenskum hlaupurum hlaupið fyrir góðgerðafélög og safnað áheitum frá fjölskyldum og vinum sem vildu hvetja hlauparana til dáða og styrkja um leið gott málefni.

Þá kemur fram að þær skráningar sem þegar liggja fyrir benda til að þessi þróun haldi áfram og að langflestir hlauparanna kjósi að hlaupa í þágu góðgerðafélaga.

„Frá því að opnað var fyrir möguleikann á að heita á hlaupara hafa áheitin reynst mörgum góðgerðarfélögum umtalsverður búhnykkur,“ segir í tilkynninguni.

Þannig fengu fjögur félög yfir tvær milljónir króna hvert í fyrra og fimm félög til viðbótar fengu á bilinu 1,1 til 1,6 milljónir króna hvert félag.

Þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni geta valið úr hátt í 100 góðgerðarfélögum af ýmsu tagi og safnað áheitum fyrir þau.

Auðvelt að heita á hlaupara

Í tilkynningunni kemur fram að auðvelt er að heita á hlaupara í gegnum heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins www.marathon.is og það eina sem þarf er greiðslukort og aðgangur að tölvu. Einnig er hægt að nálgast síðuna á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is .

Á heimasíðu Reykjavíkurmaraþonsins er hægt að fletta upp hverjir hafa skráð sig í hlaupið og kemur þá fram hvaða góðgerðafélag viðkomandi hyggst hlaupa fyrir. Einnig er hægt að fletta upp nöfnum þeirra góðgerðafélaga sem skráð eru og fylgjast með því hverjir ætla að hlaupa fyrir hvert félag.