Latibær hefur gert samstarfssamning við breska heilbrigðisráðuneytið. Samningurinn felur í sér að Latibær tekur þátt í herferð þar sem börn eru hvött til heilbrigðari lífsstíls.

Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Latabæ, segir að um stórt verkefni sé að ræða. „Fyrir vörumerki eins og okkar, sem býr við mikla samkeppni, þá höfum við lagt áherslu á verkefni og vörur sem standa fyrir og miðla okkar gildum.“ Eins og Íslendingar þekkja vel berst Íþróttaálfurinn fyrir bættri heilsu íbúa Latabæjar og sýnir þeim að það er gaman að „borða hollan mat og hreyfa sig,“ eins og hann segir sjálfur.