Árið 2018 voru heildarlaun fullvinnandi launamanna að meðaltali 721 þúsund krónur á mánuði. Frá þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar.

Miðgildi heildarlauna var 632 þúsund krónur og var því helmingur launamanna með laun undir þeirri upphæð og helmingur yfir. Munur meðaltals og miðgildis skýrist meðal annars af því að hæstu laun hækka meðaltalið en kjarasamningar tryggja ákveðin lágmarkskjör án þess að kveða á um hámarkskjör. Þegar horft er á dreifingu heildarlauna var algengast að mánaðarleg heildarlaun væru á bilinu 550 til 600 þúsund krónur og var rúmlega tíundi hver fullvinnandi launamaður með heildarlaun á því bili," segir í fréttinni.

Heildarlaun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 729 þúsund krónur á mánuði árið 2018 hjá fullvinnandi starfsmönnum. Heildarlaun ríkisstarfsmanna voru 818 þúsund krónur að meðaltali en 593 þúsund krónur hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Dreifing heildarlauna var ólík eftir launþegahópum, þannig voru um 70% starfsmanna sveitarfélaga með heildarlaun undir 650 þúsundum króna á mánuði en það sama átti við um 35% ríkisstarfsmanna og tæplega 55% starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Um 5,5% starfsmanna á almennum vinnumarkaði og ríkisstarfsmanna var með heildarlaun yfir 1.400 þúsund krónur á mánuði en óverulegur hluti starfsmanna sveitarfélaga var með þau laun."