Bætiefnaframleiðandinn Herbalife skar laun forstjóra fyrirtækisins, Michael Johnson, fyrir síðasta ár niður um 36%, að því er segir í frétt Reuters. Ástæðan er sú að í fyrra náði hann ekki tilætluðum markmiðum í rekstri fyrirtækisins og fékk því ekki þær árangurstengdu greiðslur sem hann fékk fyrir árið 2013.
Árið 2013 námu laun Johnson 10,5 milljónum dala, andvirði um 1,4 milljörðum króna, en fyrir síðasta ár fær hann greiddar 6,7 milljónir dala.
Herbalife hefur verið undir smásjá fjárfesta eftir að aðgerðafjárfestirinn William Ackman sakaði fyrirtækið árið 2012 um að reka píramídasvindl. Herbalife hefur hafnað þessum ásökunum. Á föstudag gaf Herbalife út afkomuviðvörun, en gert er ráð fyrir því að tekjur fyrirtækisins á þessu ári muni dragast saman vegna sterkrar stöðu Bandaríkjadals.