Launavísitala í apríl 2011 er 385,6 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði, samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands . Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 4,4%

Vísitala kaupmáttar launa í apríl 2011 er 105,7 stig og lækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,5%.