Regluleg laun voru að meðaltali 1,4% hærri á þriðja ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,3% að meðaltali, hækkunin var 5,9% á almennum vinnumarkaði og 7,6% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 6,8% en 8,4% hjá starfsmönnum sveitarfélaga.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í samgöngum eða um 1,7%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 1,1% í byggingarstarfsemi, 1,0% í fjármálaþjónustu, 0,3% í verslun og 0,1% í iðnaði. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í byggingarstarfsemi eða um 7,9% en minnst í iðnaði eða um 4,3%.

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 0,1% til 1,1%. Laun skrifstofufólks hækkuðu mest en laun verkafólks minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 6,9% en laun verkafólks minnst eða um 5,2%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 6,3%, skrifstofufólks um 6,2%, sérfræðinga um 6,1%, iðnaðarmanna um 5,5% og stjórnenda um 5,3%.