Regluleg laun voru að meðaltali 1,9% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan, að því er fram kemur á v ef Hagstofunnar. Þá hækkuðu laun frá fyrra ári um 5,5% að meðaltali. Hækkunin var 5,7% á almennum markaði og 4,9% hjá opinberum starfsmönnum.

Ef litið er til launahækkana eftir atvinnugrein kemur í ljós að milli ársfjórðunga mældist hækkunin mest í byggingarstarfsemi og verslun eða um 3%. Laun hækkuðu um 2,4% í iðnaði, 1,7% í fjármálaþjónustu og 1,4% í samgöngum. Frá fyrra ári var hækkunin mest í byggingarstarfsemi eða 7,1%, en minnst í iðnaði eða um 5,0%.

Launahækkun milli ársfjórðunga eftir starfstétt var á bilinu 1,5% til 3,2%. Laun þjónustu-, sölu-, og afgreiðslufólks hækkuðu mest en laun tækni og sérmenntaðs starfsfólk minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks og þjónustu-, sölu-, og afgreiðslufólks mest eða um 7,1%, en laun stjórnenda hækkuðu minnst, um 4,9%.