Laun hækkuðu um 0,8% á síðasta ársfjórðungi 2012 miðað við sama ársfjórðung 2011. Frá fyrra ári í heild hækkuðu laun um 4,8% að meðaltali en hækkunin var 5,1% á almennum vinnumarkaði og 4,0% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í dag.

Miðað við fyrri ársfjórðung hækkuðu regluleg laun mest í fjármálaþjónustu, hjá lífeyrissjóðum og vátryggingum og nam hækkunin 1,3%. Á sama tíma hækkuðu laun um 0,8% í byggingarstarfsemi. Miðað við fyrra ár í heild hækkuðu laun einnig mest í fjármálaþjónustu eða um 9%.

Sé litið til ólíkra starfsstétta þá hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 1,6%. Laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 0,5% á sama tímabili. Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 7,3% en laun verkafólks hækkuðu minnst, um 3,1%