Launavísitala í júlí 2015 er 523,0 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði, en þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar . Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,9%.

Þá var vísitala kaupmáttar launa í mánuðinum 124,8 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar hækkað um 5,9%.

Fram kemur í fréttinni að áhrifa nýgerðra kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem undirritaðir voru í maí og júní síðastliðnum, gæti í vísitölunni. Þar hafi verið kveðið á um sérstaka hækkun kauptaxta, breytingar á launatöflum og launaþróunartryggingu, að lágmarki 3,2%.