Launavísitala í maí 2015 er 505,7 stig og hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,3%, að því er fram kemur í nýrri frétt Hagstofu Íslands .

Þar segir einnig að vísitala kaupmáttar launa í maí sé 121,1 stig og hækkaði hún um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,6%.