Regluleg laun voru að meðaltali 3,5% hærri á þriðja ársfjórðungi  2015 en á ársfjórðungnum á undan. Hækkun milli ára á þriðja ársfjórðungi er 7,9% að meðaltali, hækkunin var 8,3% á almennum vinnumarkaði og 6,7% hjá opinberum starfsmönnum. Laun ríkisstarfsmanna hækkuðu um 6% og laun starfsmanna sveitarfélaga um 7,4%. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofu Íslands nú í morgun

Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstétt á bilinu 1,7% til 6,0%. Laun verkafólks hækkuðu mest en sérfræðinga minnst milli ársfjórðunga. Árshækkun frá þriðja ársfjórðungi 2014 var einnig mest hjá verkafólki eða um 11,0% en minnst hjá stjórnendum og sérfræðingum eða um 5,3%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks um 10,3%, sérmenntaðs starfsfólks um 7,7% og iðnaðarmanna um 7,3%.