Launavísitalan hækkaði um 0,4% á milli mánaða í febrúar og stendur hún nú í 470,5 stig. Á síðastliðnum 12 mánuðum hefur launavísitalan hækkað um 4,7%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Á sama tíma lækkaði vísitala kaupmáttar um 0,2% á milli mánaða. Á síðustu 12 mánuðum hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,5%.