Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu um 2,6% á 3. ársfjórðungi frá þeim fyrri. Laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 0,7% að meðaltali. Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,0% hærri á þriðja ársfjórðungi 2010 en í ársfjóðrungnum á undan. Hagstofan birti í dag gögn um vísitölu launa.

Frá fyrra ári hækkuðu laun um 6,0%, þar af 7,6% á almennum vinnumarkaði og 2,2% hjá opinberum starfsmönnum.

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð

Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun skrifstofufólks mest eða um 3,1% en laun iðnaðarmanna minnst eða um 2,3%.  Frá fyrra ári hækkuðu laun á bilinu 6,9% til 8,6%, mest hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks en stjórnenda minnst.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun launa í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum 3,5% en laun í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð 1,8%. Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun mest í samgöngum og flutningum 9,3 % en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 5,9%.

Áhrif kjarasamninga

Vísitala launa byggir á meðaltali reglulegra launa í hverjum ársfjórðungi. Áhrifa kjarasamningsbundinna launabreytinga sem komu til framkvæmda undir lok annars ársfjórðungs 2010 má því jafnframt greina í samanburði launa á öðrum og þriðja ársfjórðungi ársins.“