Launavísitala í desember 2008 er 353,6 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,3%.

Þá hefur kaupmáttur launa dregist saman um 8,2% síðustu 12 mánuði.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands en þar kemur fram að vísitala kaupmáttar launa í desember er 109,0 stig og lækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8,2%.

Sjá nánar vef Hagstofunnar.