Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,2% hærri á þriðja ársfjórðungi 2008 en í ársfjórðungnum á undan.

Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 1,1% að meðaltali og laun opinberra starfsmanna um 4,8%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Þar kemur fram að frá fyrra ári hækkuðu laun um 9,4%, þar af um 8,9% á almennum vinnumarkaði og um 10,7% hjá opinberum starfsmönnum.

Þá kemur fram að frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun verkafólks mest eða um 1,5% en laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks hækkuðu minnst, um 0,8%.

Laun verkafólks hækkuðu jafnframt mest frá fyrra ári eða um 11,0% en laun stjórnenda hækkuðu minnst, 6,8%.

Mestar launahækkanir í byggingarstarfsemi en minnstar í verslun

Hækkun launa eftir atvinnugrein mældist mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, 2,2% frá fyrri ársfjórðungi en minnst mældist hækkun launa í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu 0,6%.

Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun jafnframt mest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða um 11,6% en minnst mældist hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,1%.

Sjá nánar á vef Hagstofu Íslands.