Félag viðskipta- og hagfræðinga (FVH) birtir nú niðurstöður úr kjarakönnun félagsins fyrir árið 2008 en félagið hefur gert kjarakannanir reglulega frá árinu 1979. Síðustu ár hefur könnunin verið gerð á tveggja ára fresti en framvegis verður hún gerð árlega. Niðurstöðurnar nú sýna því þróun frá árinu 2007. Kjarakönnun FVH hefur mikla þýðingu fyrir alla viðskiptafræðinga og hagfræðinga því óhikað má segja að hún sé þeirra helsti gagnabrunnur um kjör, vinnufyrirkomulag og vinnutíma og gagnast bæði launamönnum og atvinnurekendum. Capacent Gallup gerði könnunina og byggja niðurstöðurnar á svörum 1.953 viðskipta- og hagfræðinga.

Heildarmánaðarlaun viðskipta- og hagfræðinga

Miðgildi heildarmánaðarlauna viðskipta- og hagfræðinga mælist nú 540 þúsund kr. sem er hækkun um tæplega 4% frá því á sama tíma í fyrra. Hækkun launa nú er talsvert minni en í síðustu mælingu þar sem laun höfðu hækkað um 13% á tveggja ára tímabili eða um 6,5% á ári. Þegar niðurstöðurnar eru greindar eftir starfsaldri svarenda kemur í ljós að laun þeirra sem eru með minnstan starfsaldur hækka hlutfallslega meira en þeirra sem hafa starfað lengur sem viðskipta- eða hagfræðingar.

Kynbundinn launamunur

Athygli vekur að laun kvenna hafa hækkað hlutfallslega meira en laun karla. Mánaðarlaun kvenna hækka um ríflega 11% og er miðgildi þeirra nú 500 þúsund kr. en laun karla hækka um 2,4% og eru nú 600 þúsund kr. á mánuði. Þegar ekki er tekið tillit til annarra þátta mælast því karlar með 20% hærri laun en konur.

Vinnuvika karla er að meðaltali 51,6 klukkustundir en kvenna að meðaltali 47,5 stundir. Þegar launamunurinn er leiðréttur með tilliti til vinnuframlags mælist munurinn nú 15,6% en var um 21% í Kjarakönnunum FVH árin 2007 og 2005.

Þegar launamunur kynjanna er svo leiðréttur með tilliti til fleiri þátta eins og menntunar, starfs, atvinnugreinar, aldurs, vinnuframlags, mannaforráða og starfsaldurs kemur í ljós að launamunur kynjanna virðist vera heldur að minnka. Nú mælist leiðréttur launamunur 7,5% en var 8,8% árið 2007, 7,6% árið 2005 og 6,8% árið 2003.