Launavísitalan hækkaði í nóvember um 0,3% frá fyrri mánuði og endaði hún í 589,9 stigum. Kaupmáttur launa mældist í 138 stigum í nóvembermánuði sem er hækkun um 0,3% frá fyrri mánuði. Kemur þetta fram í tölum Hagstofunnar .

Launavísitalan hefur hækkað um 9,7% síðastliðna tólf mánuði en í nóvember í fyrra var hún í 537,6 stigum. Vísitala kaupmáttar launa hefur hækkað um 7,5% á þessu tímabili.